Fréttir : Forsíða » Föstudagsmolar fostjóra 17. Október 2025 – Gestahöfundur er Hjalti Kristjánsson íþróttafræðingur.

Ragheiður, Hjalti og Svava.

Í þessari viku sem er að klárast hefur verið sérhópur af pólskumælandi fólki hjá Efnaskipta og offitusviði Reykjalundar.  Teymið hefur fengið talsvert margar beiðnir fyrir einstaklinga sem tala eingöngu pólsku en ekki geta sinnt þeim hingað til.

Til þessa að mæta þessari þörf sótti Efnaskipta og offituteymið um styrk hjá Lýðheilsusjóð Landlæknis í loks árs 2023 og fékk styrk til að þýða fræðsluefni yfir á pólsku. Sett var saman fræðsluhefti úr þýdda efninu og kallaður saman hópur af pólskumælandi fólki. Byrjað var á matsviðtali faghópa og meðferðin kynnt fyrir hverjum og einum. Með aðstoð túlks (hann Jósef algjörlega frábær) hefur teymið síðan haldið utan um fræðslu og hreyfiprógramm í vikunni og aðstoðað hópinn eins og aðra sem hér fara í gegnum meðferð hjá okkur.  Ætlunin er að hitta hópinn í endurkomu í desember og aftur í eina viku í febrúar

Það er ört vaxandi hópur í samfélaginu sem óskar eftir okkar aðstoð sem talar litla íslensku. Þetta er í fyrsta skipti sem þetta er gert hér á Reykjalundi og  hefur þetta verið lærdómsríkt og skemmtileg áskorun fyrir okkur sem teymi.  Vonandi mun þetta geta gefið okkur skilning og þekkingu á hvernig Reykjalundur getur aðstoða fólk sem er með annað tungumál en íslensku til að ná skrefum í átt að meira heilbrigði.

Jósef túlkur

Skip to content