Ágæta samstarfsfólk hér á Reykjalundi.
Hrekkjavökugleði – Þakkir til starfsmannafélagsins og ykkar allra!
Ég vil byrja á að þakka ykkur kærlega fyrir síðast á Hrekkjavökkuhátíðinni í gær. Fyrir þá sem ekki vita var í gærkvöldi félagsheimilið Hlégarður hér í Mosfellsbænum undirlagt hrekkjavökugleði starfsmannafélagsins okkar. Alveg geggjaðir búningar í öllum hornum og mikil stemning. Hópurinn var hristur saman með hláturjóga-leikjum og eftir matinn fengum við alveg hreint ljómandi tónlistaratriði. Myndin með molunum er einmitt frá Hrekkavökuhátíðinni í gær og sýnir starfsfólk Miðgarðsteymis stilla sér upp í myndatöku. Það er ómetanlegt fyrir alla góða vinnustaði að vera með flott og öflugt starfsmannafélag.
Ég vil því nota þetta tækifæri og senda stjórn starfsmannafélagsins okkar kærar þakkir fyrir frábært framtak og auðvitað öllum hinum snillingunum sem mættu til leiks algerlega bestu þakkir fyrir þátttökuna og gleðina.
Við þetta má svo alveg bæta að eins og stundum áður tóku iðjuþálfar okkar hrekkjavökuna skrefinu lengra en við hin flest og voru í glæsilegum búningum allan gærdaginn hér á Reykjalundi auk þess að skreyta starfssvæðið sitt í stíl við tilefnið. Þetta heitir að setja sannarlega skemmtilegan svip á Reykjalundarlífið.
Óveður og ófærð.
Annars má segja að þessi vika hafi einkennst af snjókomu og ófærð. Sannarlega fyrsti hvellur þessa vetrar sem kom á þriðjudaginn og eins og alltaf hægist verulega á umferð þegar snjórinn byrjar að láta sjá sig í upphafi vetrar. Þrátt fyrir fannfergi er mikilvægt að halda þjónustunni úti eins og mögulegt er, þar sem margir sjúklingar okkar hafa beðið lengi eftir að fá að komast til okkar, eru komnir utan af landi og fleira. Það er því ánægjulegt að sjá hversu vel okkur hefur tekist við að halda nánast alveg dampi í starfseminni. Það er ekki sjálfgefið og vil ég nota þetta tækifæri og þakka ykkur kærlega fyrir.
Við erum svo öll vakandi í hlákunni sem verður í dag, það má búast við mikilli hálku.
Instagram reikingur Reykjalundar aftur í gang.
Fyrir um ári síðan opnuðum við hér á Reykjalundi Instagram reikning með popm og prakt. Þetta var gert í kjölfar stefnumótunarvinnu sem fór fram haustið 2023 og þar kom skýrt fram mikilvægi þess að starfsemin væri sýnileg á samfélagsmiðlum, ekki síst Instagram. Markmiðið með reikningnum er að gefa jákvæða og skemmtilega innsýn í Reykjalundarlífið og gefa sýnishorn úr daglegu lífi hjá okkur. Ætlunin er að „grammið“ sé svo að ganga á milli eininga og deilda hér á Reykjalundi, viku og viku í senn.
Reikningurinn hefur aðeins veirð í dvala nú í haust en í næstu viku blásum við lífi í þetta aftur og sendum út vikuskiptingu umsjónaraðila. Vonandi eru sem allra flestir til í að vera með okkur í þessu.
Endilega fylgið okkur á Instagram: reykjalundur.endurhaefing
Njótið helgarinnar!
Bestu kveðjur,
Pétur

