Ágæta samstarfsfólk hér á Reykjalundi,
Kvennaverkfall í dag á 50 ára afmæli.
Í dag hefur verið boðað kvennaverkfall þar sem mælst er til þess að konur og kvár þessa lands leggi niður ólaunuð og launuð störf og minni þannig á gríðarlegt mikilvægi framlags síns í samfélaginu. Í dag eru einmitt 50 ár síðan fyrsti kvennafrídagurinn var haldinn, árið 1975. Ljóst er að margir vinnustaðir verða með skerta þjónustu og takmarkaða starfsemi. Víða í heilbrigðis- og velferðarþjónustu gengur það hins vegar ekki og þurfa einhverjir aðilar að vera við vinnu.
Reykjalundur styður málstaðinn heilshugar. Hins vegar þurfum við að bera virðingu fyrir þeim sjúklingum sem við sinnum og gera allt sem við getum í þeirra þágu. Reykjalundur er opin í dag og við gerum okkar besta til að sjúklingar okkar finni sem minnst fyrir verkfallinu en auðvitað hefur áhrif þetta á starfsemina. Til dæmis var opnunartíma matasalar breytt og fleira en starfsfólk hefur verið í samskiptum við sína yfirmenn um fyrirkomulag varðandi meðferð sjúklinga. Baráttu- og samstöðufundir verða víða um land og hefst dagskrá í Reykjavík með sögugöngu kl.13:30.
Ég sendi konum og kvár góðar kveðjur í tilefni dagsins.
Talmeinafræðingar fá nýjan búnað.
Í vikunni heimsótti ég talmeinafræðingana okkar, þær Bryndísi og Auði. Þær hafa verið að uppfæra búnað sinn undanfarið fyrir prófun og vinnu með sjúklingum, meðal annars með styrk úr Oddsjóði. Talmeinafræðingar á Reykjalundi vinna með ólíkum hópum skjólstæðinga með ólíkar þarfir en allir eiga sameiginlegt að nota tækni í meðferð sinni. LSVT LOUD coach er hugbúnaður sem mælir raddstyrk og blæbrigði raddar auk þess sem búnaðurinn mælir meðalstyrk raddar í upplestri eða sjálfsprottnu tali. Hugbúnaðurinn byggir á LSVT-þjálfunaraðferðinni sem er undirstaða þjálfunar parkinsonsjúklinga á Reykjalundi, hvort sem er í einstaklingsþjálfun eða hópastarfi. Í hugbúnaðinum er einnig þjálfunarhluti þar sem skjólstæðingur fær sjónbendingu ef raddstyrkur lækkar mikið.
Þessi hugbúnaður, ásamt tölvubúnaði, hefur nú verið uppfærður í takt við nútímann og var gaman fyrir mig að fá kynningu hjá þeim hvernig þetta nýtist í daglegu starfi.
Það er því vel við hæfi að myndin með molunum í dag sé af þeim Auði og Bryndísi með nýja búnaðinn.
Að lokum vil ég þakka kærlega fyrir frábæra þátttöku í Bleika deginum á miðvikudaginn enda mikilvægur málsstaður þar á ferðinni. Hlakka svo til komandi viku þar sem hápunkturinn er án efa Hrekkjarvökuhátíð starfsmannafélagsins okkar þar sem ég hvet sem allra flest ykkar til að taka þátt.
Góða og gleðilega helgi!
Pétur

