Á fimmtudaginn fór fram árlegt Heilbrigðisþing heilbrigðisráðuneytisins en eins og kunnugt er fjallaði það um endurhæfingu að þessu sinni. Þetta er fjölmennasta heilbrigðisþingið sem haldið hefur verið, alls 500 manns sem voru skráðir til leiks og mikill fjöldi horfði líka á streymi þingsins. Í kynningu um þingið var sagt: “Dagskráin er fjölbreytt og margir áhugaverðir fyrirlestrar um endurhæfingu ásamt pallborðsumræðum um skipulag endurhæfingar, áskoranir og framtíðarsýn.“
Mbl.is fjallaði um opnunarávarp heilbrigðisráðherra og sagði meðal annars: “Það er innviðaskuld víða í heilbrigðiskerfinu, í húsnæði og viðhaldi þess, í mönnum og tækjabúnaði, rafrænum kerfum og í stjórnsýslu. Endurhæfing er hér ekki undanskilin,” sagði Alma í ávarpi sínu, og benti á að rótgrónar endurhæfingarstofnanir ættu í vanda með húsnæði sitt vegna endurnýjunar- og viðhaldsskuldar og fjármögnun slíkra framkvæmda. „Þeir sem byggðu upp þjónustu fyrir aldraða á síðustu öld án aðkomu ríkisins gátu sótt í framkvæmdasjóð aldraðra fyrir endurbótum en sama gilti ekki um endurhæfingarstofnanir. Við bætist að í lögum um heilbrigðisþjónustu er ekki fjallað með neinum hætti um hvernig skal standa að uppbyggingu á aðstöðu undir endurhæfingarstarfsemi og ekki liggja fyrir nein viðmið er varðar húsnæði slíkra stofnana,” bætti hún við.
Sjá nánar frétt mbl.is um málið hér
Við á Reykjalundi vorum að sjálfsögðu hluti af dagskránni en bæði Árdís Björk framkvæmdastjóri lækninga og Guðrún Þuríður, yfirlæknir efnaskipta- og offitureymis voru með mjög flott erindi. Einnig var Terrence Carolan frá CARF-international með erindi og sagði hann meðal annars frá samstarfinu við Reykjalund.
Það var glæstur hópur starfsmanna Reykjalundar sem sótti þingið og fór hann í myndatöku ásamt Ölmu heilbrigðisráðherra og Terrence frá CARF. Jafnframt var boðið upp á að horfa á streymið í Reykjafelli og nýttu margir sér það. Loks bauð Instagram reikningur Reykjalundar upp á fjölda mynda.
Hægt að horfa á alla dagskrána frá heilbrigðisþinginu í streyminu hér
