
Myndin er af fulltrúum Hollvinasamtakanna ásamt Fannari forstöðumanni upplýsinga- og velferðartækni, Ellu Björt taugasálfræðingi og Pétri Magnússyni.
Hollvinasamtök Reykjalundar hafa fært Reykjalundi sex fartölvur að gjöf. Gjöfin kemur sér vel, enda er góður tækjabúnaður mikilvægur þáttur í nútíma heilbrigðisþjónustu. Fannar, forstöðumaður upplýsinga- og velferðartækni, kom tölvunum fljótt í notkun, meðal annars hjá sjúkraþjálfurum og sálfræðingum.
Reykjalundur þakkar Hollvinasamtökum Reykjalundar kærlega fyrir stuðninginn.
