Á Bleika deginum berum við Bleiku slaufuna, klæðumst bleiku og lýsum skammdegið upp í bleikum ljóma til að minna á að það er list að lifa með krabbameini. Við stöndum með öllum konum sem greinst hafa með krabbamein og aðstandendum þeirra.
Bleiki dagurinn var haldinn hátíðlegur í gær hér á Reykjalundi líkt og víða í samfélaginu. Hér klæddust nær allir einhverju bleiku til að sýna stuðning og vekja athygli á árvekniátaki Bleiku slaufunnar og baráttunni gegn krabbameinum hjá konum.
Meðfylgjandi myndir voru teknar í gær og fanga vel bleiku stemninguna hér á Reykjalundi.








