Fréttir : Forsíða » Áhrif kulda við göngu utandyra á blóðþrýsting, hjartslátt og mæði hjá einstaklingum með kransæðasjúkdóm: Forkönnunarrannsókn

Útiganga er ein einfaldasta og árangursríkasta þjálfunaraðferðin í hjartaendurhæfingu og er stunduð allan ársins hring á Reykjalundi. Að vetri til fylgir útigöngu þó kuldaáreiti sem getur haft áhrif á hjarta- og æðakerfið, sérstaklega hjá einstaklingum með kransæðasjúkdóm. Hingað til hafa rannsóknir á áhrifum kulda á þennan hóp verið takmarkaðar.

Í þessari forkönnunarrannsókn var leitast við að varpa ljósi á áhrif kulda við raunverulega gönguþjálfun utandyra að vetrarlagi, með samanburði við sambærilega áreynslu innandyra. Markmiðið var að meta svörun líkamans, meðal annars hvað varðar blóðþrýsting, hjartslátt, mæði og möguleg óþægindi, hjá einstaklingum með stöðugan kransæðasjúkdóm í hjartaendurhæfingu á Reykjalundi.

Grein eftir Telmu Sigþrúði Guðbjarnadóttur 6. árs læknanemi 2024-25 kom út í tímaritinu Læknaneminn sem fjallar um þessa rannsókn. Hún vann þessa rannsókn hér á Reykjalundi ásamt Karli Kristjánssyni lækni, Ingu S Þráinsdóttur lækni og Mörtu Guðjónsdóttir lífeðlisfræðing.

Greinin á pdf
Læknaneminn 2025

 

Skip to content