Mikil og góð stemning ríkti á Reykjalundi miðvikudaginn 14. október þegar haldið var útgáfuhóf í tilefni af útgáfu uppskriftarinnar að peysunni ,,Árangur”. Vel var mætt og nutu gestir kvöldsins í notalegu umhverfi þar sem handverk, tónlist og góð samvera fóru saman.
Handverkskúnst, sem er styrktaraðili verkefnisins, var á staðnum með fjölbreytt úrval af garni til sölu. Margir nýttu tækifærið til að skoða litina og velja sér garn í sína eigin Árangurspeysu og myndaðist skemmtileg stemning við garnborðin.
Boðið var upp á léttar veitingar og glæsileg tónlistaratriði. Ástrós Sigurjónsdóttir flutti nokkur djasslög ásamt frumsömdum lögum, en Hildur Jónsdóttir og Þorvaldur Aðalsteinsson fluttu valdar dægurperlur við góðar undirtektir gesta. Við viljum færa þeim kærar þakkir fyrir að leggja sitt af mörkum og gera kvöldið enn eftirminnilegra.
Ellý Skúladóttir kynnti tilurð peysunnar Árangur og sagði frá hugmyndinni að baki verkefninu. Þá flutti Kolbrún Þorsteinsdóttir ávarp þar sem hún kynnti starfsemi Hollvina Reykjalundar og það mikilvæga stuðningshlutverk sem félagið gegnir fyrir starfsemina á Reykjalundi.
Uppskriftin að peysunni var til sölu á útgáfuhófinu og fékk afar góðar viðtökur. Jafnframt hefur salan farið vel af stað á netinu og er uppskriftin ,,Árangur” nú aðgengileg á heimasíðu Reykjalundar. Allur ágóði af sölu uppskriftarinnar rennur til Hollvina Reykjalundar og styður þannig við áframhaldandi uppbyggingu og þróun starfseminnar.
Sérstakar þakkir fær Margrét Lára Höskuldsdóttir sem sá um ljósmyndun fyrir uppskriftina. Myndir hennar gefa verkefninu fallegan svip og er framlag hennar ómetanlegt.
Við þökkum öllum sem komu á útgáfuhófið fyrir komuna og hlýjar móttökur. Einnig viljum við færa kærar þakkir til þeirra fjölmörgu sem þegar hafa fest kaup á uppskriftinni og sýnt verkefninu mikinn áhuga. Stuðningurinn skiptir miklu máli og mun nýtast Hollvinum Reykjalundar vel í áframhaldandi starfi.










