Fréttir : Forsíða » Þakkarávarp stjórnar Reykjalundar
Fyrir hönd stjórnar Reykjalundar vil ég færa öllum þeim sem komu að landssöfnuninni innilegar þakkir.
Árangurinn fór fram úr öllum væntingum. Að rúmlega 111 milljónir króna söfnuðust er einstakur vitnisburður um þann hlýhug, traust og velvilja sem Reykjalundur nýtur meðal landsmanna, fyrirtækja og í samfélaginu öllu.
Sérstakar þakkir færum við Hollvinum Reykjalundar fyrir frumkvæðið, eljusemina og óeigingjarnt starf við undirbúning og framkvæmd söfnunarinnar. Án ykkar framtaks, krafts og trúar á verkefnið hefði þessi árangur ekki náðst.
Við viljum einnig þakka starfsfólki Reykjalundar og velunnurum stofnunarinnar fyrir þann einstaka samhug og stuðning sem birtust með svo fallegum hætti í aðdraganda söfnunarinnar, meðal annars í hjólaátakinu, prjónaverkefnum og fjölmörgum öðrum framtökum sem vöktu athygli og innblástur.
Jafnframt þökkum við þeim fjölmörgu sjálfboðaliðum sem komu að verkefninu. Framlag ykkar minnir okkur á þann anda sem Reykjalundur spratt úr fyrir nær 80 árum. Samstaða, frumkvæði og vilji fólks til að leggja sitt af mörkum fyrir aðra eru enn meðal sterkustu undirstaðna Reykjalundar. Þessi söfnun sýnir að sá andi lifir góðu lífi.
Við viljum jafnframt þakka SÍBS fyrir ómetanlegan stuðning í gegnum áratugina. SÍBS hefur staðið vörð um Reykjalund frá upphafi og tryggt að hann geti áfram starfað sem öflug, óhagnaðardrifin og mikilvæg samfélagsleg auðlind.
Við viljum færa þeim fjölmörgu einstaklingum, fyrirtækjum og félagasamtökum sem studdu söfnunina innilegar þakkir. Hvert framlag skipti máli og saman hafa gefendur um land allt lagt mikilvægan skerf til að styrkja Reykjalund og endurhæfingarstarf hans til framtíðar.
Að lokum viljum við færa RÚV og Sýn okkar innilegustu þakkir fyrir velvilja, fagmennsku og framúrskarandi þátttöku í verkefninu. Söfnunarþátturinn var einstaklega vel heppnaður og gegndi lykilhlutverki í að sameina þjóðina um þetta mikilvæga málefni.
Þessi árangur mælist ekki aðeins í krónum. Hann er staðfesting á því hversu mikils virði Reykjalundur er fyrir íslenskt samfélag og hversu margir vilja leggja sitt af mörkum til að tryggja að þessi mikilvæga samfélagslega auðlind geti áfram þjónað fólki sem þarf á endurhæfingu að halda.
Takk fyrir að standa með Reykjalundi.
Fyrir það ber að þakka af heilum hug.
Fyrir hönd stjórnar Reykjalundar,
Sólveig Hildur Björnsdóttir,
stjórnarformaður
Skip to content