Fréttir : Forsíða » Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund

Að Reykjalundi í Mosfellsbæ er starfrækt einstök endurhæfingarmiðstöð sem þjónar þverskurði þjóðarinnar, byggir fólk upp svo það nái vopnum sínum eftir veikindi og sendir aftur út í lífið. En nú þarf Reykjalundur á endurhæfingu að halda, uppbyggingu sem þjóðin getur stuðlað að. Húsakostur og nær öll aðstaða þarfnast úrbóta og afar aðkallandi að við bregðumst við. Endurhæfum Reykjalund!

Fram undan er mikilvæg söfnun á landsvísu sem snýr að Reykjalundi og því magnaða starfi sem þar er unnið. Samtökin Hollvinir Reykjalundar í samvinnu við RÚV munu föstudaginn 2. október 2026 standa fyrir mikilvægri landssöfnun fyrir brýnni uppbyggingu húsakosts Reykjalundar. Meðal annars verður safnað fyrir endurbyggingu á sjúkraþjálfunarálmu. Húsakostur Reykjalundar er úr sér genginn og viðhaldsþörf er mikil. Fjölmörgum rýmum hefur verið lokuð vegna bágs ástands húsnæðis og það hamlar starfseminni. Þörf er á skjótum úrbótum.

Endurhæfum Reykjalund
Endurhæfum Reykjalund er yfirskrift þessarar mikilvægu herferðar sem hverfist um þjóðarátak í landssöfnuninni sem verður í beinni útsendingu á RÚV og í símaveri Sýnar föstudagskvöldið 2. október. Vonin er sú að ákallið nái til þjóðarinnar, fyrirtækja og stofnana landsins. Með samstilltu átaki styðjum við Reykjalund í því að styðja áfram öll þau sem þurfa á endurhæfingu aõ halda í framtíðinni. Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund.

Nokkrar staðreyndir um starfsemi Reykjalundar:
– Reykjalundur í Mosfellsbæ er stærsta og ein mikilvægasta endurhæfingarmiðstöð landsins.
– Reykjalundur hefur starfað frá miðri síðustu öld og stutt fólk út í lífið á ný.
– Á ári hverju njóta á annað þúsund manns endurhæfingar á Reykjalundi og öðlast þar með bætt lífsgæði, færni og betri vinnu- og sjálfsbjargargetu eftir áföll eða veikindi.
– Mikil samfélagsleg verðmæti felast í starfseminni á Reykjalundi og endurhæfing er þjóðhagslega hagkvæm.
– Reykjalundur er mikilvægur hlekkur í heilbrigðisþjónustu landsins þó starfsemin sé ekki á fjárlögum ríkisins.
– Reykjalundur er rekinn á óhagnaðardrifnum grunni og greiðir ekki arð.
– Reykjalundur starfar samkvæmt lögum um veitta heilbrigðisþjónustu og í gegnum þjónustusamning við Sjúkratryggingar íslands, sem greiðir fyrir endurhæfingu hvers skjólstæðings en ekki húsnæðiskostnað.
– Reykjalundur er í eigu SÍBS og er rekinn fyrir sjálfsaflafé, m.a. tekjum af happdrætti SÍBS, sem fara þó minnkandi ár frá ári.

Allar upplýsingar um þjóðarátakið Endurhæfum Reykjalund gefa:
Svana Helen Björnsdóttir, forstjóri Reykjalundar, svanahelen@reykjalundur.is
Kolbrún Guðný Þorsteinsdóttir, frá Hollvinum Reykjalundar kolbrungudny@gmail.com
Kristján Freyr, verkefnastjóri herferðarinnar í síma 772-7007 og krissrokk@gmail.com

Skip to content