Nú hafa sundlaugarnar á Reykjalundi verið opnaðar á ný eftir umfangsmiklar endurbætur sem staðið hafa yfir undanfarna mánuði.
Framkvæmdirnar voru nauðsynlegur liður í viðhaldi og endurnýjun til að tryggja áfram opnun lauganna en jafnframt nauðsynlegur liður í því að skapa örugga og góða aðstöðu fyrir sjúklinga og starfsfólk.
Báðar sundlaugar Reykjalundar hafa verið endurnýjaðar. Einnig hafa ítarleg þrif á öllu svæðinu farið fram og er aðstaðan nú einstaklega snyrtileg og glæsileg.
Það er sannarlega ánægjulegt að sjá hversu vel hefur tekist til. Laugarnar hafa fengið nýtt líf og er nú glerfínar og tilbúnar á ný til að taka á móti sjúklingum sem þiggja meðferð hér á Reykjalundi.
Við þökkum öllum fyrir þolinmæðina meðan á framkvæmdunum stóð og hlökkum til að njóta endurnýjaðrar aðstöðu með sjúklingum og starfsfólki.









