Fréttir : Forsíða » Að heita á Reykjalund í Reykjavíkurmaraþoninu
Reykjalundur tekur þátt í góðgerðarátaki Reykjavíkurmaraþons Íslandsbanka og nú gefst öllum tækifæri til að styðja starfið með því að heita á þá sem hlaupa fyrir Reykjalund.
Framlög til Reykjalundar nýtast til verkefna sem stuðla að bættri aðstöðu og auknum lífsgæðum þeirra sem njóta þjónustu Reykjalundar. Stuðningur almennings skiptir þar miklu máli og gerir félaginu kleift að leggja sitt af mörkum til áframhaldandi uppbyggingar.
Við viljum jafnframt þakka öllum þeim sem þegar hafa heitið á Reykjalund fyrir hlýhug og stuðning. Hvert framlag skiptir máli og hjálpar okkur að halda áfram mikilvægu starfi.
Kærar þakkir fyrir stuðninginn.
Hægt er að heita á Reykjalund á söfnunarsíðu Reykjavíkurmaraþons 👉 Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka
Skip to content