Nokkrar mikilvægar endurbætur standa nú yfir á Reykjalundi. Unnið er að umfangsmiklum viðgerðum á sundlaugunum, en 26 ár eru síðan þær voru teknar í notkun. Skipt er um dúk sem hjúpar laugarnar að innanverðu og gert við sprungur í forðatanki sundlauganna. Lokar og lagnir, sem leka í lagnakjallara undir sundlaugunum, verða endurnýjaðar og skipt verður um síusand í hreinsibúnaði lauganna. Nýjar flísar verða lagðar við sundlaugarbarmana og lýsing ofan við laugarnar endurnýjuð. Framkvæmdirnar eru liður í viðhaldi og endurnýjun aðstöðunnar. Áætlað er að verkinu ljúki í fyrstu viku ágústmánaðar.
Jafnframt eru hafnar framkvæmdir við endurbætur og stækkun á setustofu á þriðju hæð, B-gangi Reykjalundar. Skipt verður um framhlið (gluggafront) frá þriðju hæð og niður á jarðhæð. Markmið framkvæmdanna er að bæta aðstöðu og ásýnd húsnæðisins. Áætlað er að verkinu ljúki í nóvember.
Við þökkum fyrir auðsýndan skilning á meðan framkvæmdum stendur og hlökkum til að taka í notkun endurnýjaða aðstöðu.
Nokkar myndir frá framkvæmdunum.






