Pétur Ottesen færði Reykjalundi nýtt sjúkrarúm að gjöf. Með gjöfinni fylgdi eftirfarandi kveðja frá Pétri:
„Ég heiti Pétur Ottesen og fékk blóðþurrðar slag í júli 2024, naut endurhæfingar á Reykjalundi frá september 2025 til áramóta. Þar lærði ég að nýta mér þau verkfæri sem að mér voru rétt og er enn á góðum batavegi
Við andlát móður minnar, Fanneyjar Eddu Pétursdóttir skapaðist tækifæri til að gefa til baka til Reykjalundar með því að afhenda ykkur sjúkrarúm móður minnar með þakklæti fyrir tímann hjá ykkur
Það er mér bæði ánægja og þakklæti að geta lagt mitt af mörkum og ég vona að rúmið muni nýtast öðrum vel á þeirra vegferð til bata, rétt eins og ég fékk sjálfur svo mikilvæga aðstoð á minni vegferð.“
Kær kveðja,
Pétur Ottesen
Reykjalundur þakkar Pétri innilega fyrir veglega gjöf og óskar honum áframhaldandi góðs bata.

