Heilsuþjálfun Reykjalundar hefur fengið veglega gjöf frá Önnu Maríu Einarsdóttur, sem hefur notið endurhæfingar á Reykjalundi. Hún færði Reykjalundi tvær frisbígolfkörfur og átta frisbídiska að gjöf.
Gjöfin hefur þegar verið tekin í notkun og þátttakendur tekið henni fagnandi. Frisbígolf er skemmtileg og aðgengileg hreyfing sem sameinar útiveru, hreyfingu og félagslega samveru.
Við færum Önnu Maríu innilegar þakkir fyrir þessa höfðinglegu gjöf og hlýhug í garð Reykjalundar .

