Á Reykjalundi er lögð rík áhersla á þverfaglegt samstarf sem stuðlar að bættri þjónustu og aukinni þekkingu á endurhæfingu. Reglulega vinna háskólanemendur að meistareverkefnum sínum í samstarfi við starfsfólk Reykjalundar, þar sem gögn og sérþekking Reykjalundar nýtast við skrif á rigerðum.
Tveir meistaranemar í klínískri sálfræði vörðu nýverið meistararitgerðir sínar við Háskólann í Reykjavík, en verkefnin eru byggð á gögnum frá Reykjalundi:
- Anna Linnéa Stierna vann úr gögnum frá EO sviðinu undir handleiðslu Jórunnar Eddu Óskarsdóttur. Heiti ritgerðar er Childhood Adversity and Obesity Treatment Outcomes: An Examination of the Association Between Adverse Childhood Experiences and Response to Obesity Treatment.
- Kristín Margrét Norðfjörð vann úr gögnum frá hjartasviði undir handleiðslu Ingu Hrefnu Jónsdóttur. Heiti ritgerðar er The Effects of Interdisciplinary Rehabilitation on Mental Health and Health-Related Outcomes in Individuals with Long-COVID.

Meistaraverkefni sem þessi styrkja enn frekar þekkingargrunn Reykjalundar og undirstrika mikilvægi samstarfs við nemendur og fræðasamfélagið. Óskar Reykjalundur Önnu Linnéa og Krístínu Margréti til hamingju með áfangann og velfarnaðar.

