Fréttir : Forsíða » Hollvinir Reykjalundar færa Miðgarði sjö ný sjónvörp að gjöf

Hollvinir Reykjalundar færðu nýverið Miðgarði, sólahringsdeild Reykjalundar, sjö ný Samsung 43” sjónvörp að gjöf. Sjónvörpin eru frá fyrirtækinu IceCom og verða sett upp í herbergjum deildarinnar. Með gjöfinni verða komin sjónvörp í öll herbergi Miðgarðs, sem mun auka þægindi og bæta aðstöðu sjúklinga til afþreyingar og upplýsinga á meðan á dvölinni stendur.

Hollvinir afhenda Reykjalundi gjöfina. Frá vinstir: Erna Arnardóttir stjórnarmaður, Kolbrún G. Þorsteinsdóttir stjórnarmaður, Júlíus Þór Jónsson formaður, Örn Kjærnested stjórnarmaður, Erna Bjargey Jóhannsdóttir sviðsstjóri hjúkrunar, Bárður Tryggvason stjórnarmaður

Reykjalundur er afar þakklátur fyrir þessa rausnarlegu gjöf og þann hlýhug og stuðning sem Hollvinir sýna starfsemi staðarins með þessum mikilvæga framlagi.

Skip to content