Í daglegu lífi getur verið krefjandi að finna jafnvægi milli ráðlegginga um hollt mataræði og þess sem hentar hverjum og einum í raun og veru. Hjá Reykjalundi er lögð áhersla á að styðja fólk í að taka raunhæf skref í átt að bættri heilsu – þar skiptir mataræði miklu máli.
Í grein eftir Gunnhildi Sveinsdóttur og Birgittu Lind Vilhjálmsdóttur á vef SÍBS velta þær upp spurningunni: „Af hverju er svona erfitt að borða hollt?“
Lesa má greinina í heild sinni hér
Á vefnum Gott og einfalt er lögð áhersla á einfaldar, næringarríkar og aðgengilegar máltíðir. Markmiðið er að auðvelda fólki að yfirfæra fræðilegar ráðleggingar yfir í daglegt líf og finna lausnir sem virka – ekki bara í dag, heldur til lengri tíma. Gott & einfalt

