Fréttir : Forsíða » Fékk trú á að geta allt aftur eftir dvöl á Reykjalundi

Bárður Tryggvason, fasteignasali

„Ég fékk aftur trú á sjálfan mig og á að ég gæti lifað góðu og virku lífi þrátt fyrir áfallið.“

Þann 16. ágúst 2024 var Bárður Tryggvason á utanhúsfótboltaæfingu hjá knattspyrnufélaginu Þrótti þegar hann hneig skyndilega niður. Félagar hans héldu í fyrstu að hann væri að grínast, en fljótlega varð ljóst að um alvarlegt ástand var að ræða — Bárður hafði farið í hjartastopp.

Sem betur fer brást hópurinn hratt við. Einn félagi hans hafði nýlega lokið skyndihjálparnámskeiði og hóf endurlífgun strax. Sjúkrabíll var kallaður til og notast var við stuðtæki frá Þróttarheimilinu. Skjót og rétt viðbrögð félaga Bárðar urðu til þess að hann náði sér án varanlegs skaða.

Í kjölfarið fór Bárður í hjartaþræðingu sem gekk vel. Hjartalæknir hans, Þórarinn Guðnason, hvatti hann til endurhæfingar og mælti sérstaklega með Reykjalundi. Eftir að hafa byrjað í endurhæfingu á Landspítalanum benti einnig hjartalæknirnn þar hann á Reykjalund, var umsókn sett af stað og Bárður kom í matsviku í nóvember sama ár.

Fimm vikur sem skiptu sköpum

Bárður var í fimm vikna dvöl á Reykjalundi og segir hún hafa haft gríðarlega mikil áhrif. Hann var í góðu líkamlegu formi fyrir áfallið, sem gerði hann móttækilegan fyrir endurhæfingunni. Hann fór í fjölþætta, þverfaglega endurhæfingu sem innihélt meðal annars hjól, líkamsrækt, göngur í fallegri náttúru Reykjalundar, vatnsleikfimi, sjúkraþjálfun, iðjuþjálfun og ýmsa hóptíma.

„Ég hélt fyrst að ég væri of ungur og of hraustur fyrir vatnsleikfimi,“ segir Bárður, „en ég áttaði mig fljótt á því hvað hún gerði mér gott.“

Í iðjuþjálfun skar hann meðal annars út Tjald, tréfugl. „Það var gaman að prófa allt þetta. Endurhæfingin sýndi mér að lífið er miklu meira en fótbolti.“

Ró, jafnvægi og ný sýn á lífið

Bárður lýsir dvölinni á Reykjalundi sem stað þar sem ríki ró og friður. „Starfsfólkið er ekki á hlaupum. Það gefur sér tíma. Maður finnur að hér er verið að hægja á, núllstilla sig og vera meira í núinu.“

Hann tók meðvitaða ákvörðun um að kúpla sig frá vinnu á meðan dvölinni stóð og gaf sér rými til að endurmeta lífið eftir áfallið. „Ég fékk tækifæri til að hugsa lífið á annan hátt.“

Sérstakt við endurhæfinguna að hans mati er fjölbreytnin — að sjá hversu margt er mögulegt að gera eftir slys eða áfall. „Ég sá að ég var í góðu formi miðað við marga aðra þrátt fyrir áfalli og áttaði mig á því hvað ég var heppinn.“

Mannleg tengsl og umhverfi sem skiptir máli

Á Reykjalundi mynduðust einnig sterk tengsl. Bárður kynntist manni þar sem hann hefur haldið sambandi við og þeir hafa jafnvel talað um að hittast aftur á Reykjalundi í mat. „Maturinn er einfaldlega einstaklega góður,“ segir hann brosandi.

Hann nefnir einnig að þrátt fyrir að aðstaða mætti víða batna, geri starfsfólkið alltaf sitt besta úr aðstæðum. Umhverfið, náttúran og lágreistar byggingarnar skipti máli. „Gamla húsnæðið og gömlu byggingarnar sýna auðmýkt. Í uppbyggingu ætti að halda í þennan anda.“

Trú á sjálfan sig aftur

Stærsti lærdómurinn fyrir Bárð var að öðlast aftur öryggi og trú á eigin getu.
,,Sú frábæra endurhæfing sem ég fékk á Reykjalundi með þessu afbragðsfólki, sérfræðinga sem þar starfar skipti miklu máli fyrir mig til framtíðar“
Með stuðningi starfsfólksins lærði hann að treysta sér aftur.

,,Ég þurfti að styrkja sjálfan mig í þeirri trú að ég gæti haldið áfram.“

Í dag stundar Bárður líkamsrækt hjá HL stöðinni, spilar blak og er aftur mættur á fótboltavöllinn með Þrótti. Hann vissi lítið um Reykjalund áður en hann kom þangað, en í dag telur hann starfsemina þar hafa gríðarlegt samfélagslegt gildi.

„Það er áskorun að fara í gegnum endurhæfingu, en hún sýnir manni líka að það er hægt að eiga gott líf eftir áföll,“ segir hann að lokum. „Ég er afar þakklátur fyrir dvölina og allan þann stuðning sem hjálpaði mér að öðlast trú á að ég gæti allt aftur.“

 Mikilvægi Hollvina Reykjalundar

Bárður nefnir einnig hversu mikilvægt hann telji starf Hollvina Reykjalundar. „Starfsemi Reykjalundar er ómetanleg og það skiptir gríðarlega miklu máli að samfélagið standi með henni,“ segir hann. Að hans mati skapa Hollvinir Reykjalundar mikilvægan stuðning sem gerir stofnuninni kleift að þróa umhverfi, aðstöðu og þjónustu enn frekar, til hagsbóta fyrir þá sem þar sækja endurhæfingu.

„Ég áttaði mig ekki fyrr en eftir dvölina hversu mikið Reykjalundur skiptir máli – ekki bara fyrir einstaklinga heldur fyrir samfélagið allt. Að vera Hollvinur er einföld leið til að leggja sitt af mörkum og styðja við starf sem skilar raunverulegum lífsgæðum.“

 

Skip to content