Fréttir : Forsíða » Glæsilegur innrauður gufuklefi að gjöf frá Hollvinasamtökum Reykjalundar

Á myndinni inni í innfrarauða klefanum eru Guðmundur Örn Ingvason umsjónarmaður fasteigna og Júlíus Þór Jónsson formaður Hollvinasamtaka Reykjalundar

Hollvinasamtök Reykjalundar hafa fært Reykjalundi glæsilegan innrauðan gufuklefa að gjöf. Klefinn var sérsmíðaður fyrir starfsemina og er staðsettur hjá sundlauginni. Hann rúmar 5–7 manns og nemur verðmæti gjafarinnar rúmum þremur milljónum króna.

Innrauð gufa byggir á notkun innrauðs ljóss sem hitar líkamann beint, án þess að hita loftið í klefanum að sama marki og í hefðbundinni gufu. Hitastigið er um 55°C og þolist því oft betur en hefðbundin gufa eða heitir bakstrar. Talið er að meðferðin hafi sérstakt gildi í stoðkerfismeðferð, þar sem hitinn nær dýpra inn í líkamann, allt að 4 cm undir yfirborð húðar.

Meðferðartími er að jafnaði 20–30 mínútur. Helstu áhrif sem rakin eru til innrauðrar gufu eru verkjastilling, hraðari endurheimt eftir þjálfun, slökun, aukið blóðflæði og önnur jákvæð heilsutengd áhrif. Gufuklefinn mun því nýtast afar vel í starfsemi stofnunarinnar.

Reykjalundur þakkar Hollvinasamtökunum hjartanlega fyrir þessa höfðinglegu gjöf og sendir einnig þakklæti til allra iðnaðarmanna og annara sem komu að smíði klefans.

Skip to content