Ágæta samstarfsfólk hér á Reykjalundi,
Hér koma föstudagsmolarnir í þessari viku. Fyrr á árinu fékk Ásta Kristín Gunnarsdóttir sjúkraþjálfari í taugateymi styrk úr Oddssjóði til kaupa á búnaði fyrir flotmeðferð, sem er sannarlega spennandi viðbót í meðferðarmöguleikana hjá okkur. Ásta Kristín er gestahöfundur molanna í dag og segir okkur frá meðferðinni.
Myndin með molunum er tekin í tíma hjá henni í flotmeðferð.
Góða helgi! Bestu kveðjur, Pétur
Föstudagsmolar 10. október 2025 – Flotmeðferð.
Hvað er flot?
Flot er djúpslakandi vatnsmeðferð þar sem áherslan er lögð á að einstaklingurinn nái slökun og vellíðan. Ýmsar rannsóknir hafa sýnt fram á margþætt jákvæð áhrif flotmeðferðar svo sem dregur úr streitu, hefur jákvæð áhrif á kvíða og þunglyndi, bætir svefn og eflir slökun.
Flotmeðferð hefur verið í boði á Reykjalundi síðast liðin þrjú ár eftir að ég sótti flotnámskeið hjá Flothettu. Fyrst um sinn var þetta aðeins fyrir skjólstæðinga á mínu sviði en áhuginn á flotinu jókst jafnt og þétt og var eftirspurnin komin þvert yfir meðferðarsviðin á skömmum tíma.
Vegna aukinnar eftirspurnar sá ég þörf fyrir að sækja styrk fyrir auknum flotbúnaði hjá Oddsjóði. Eftir að ég fékk samþykkt þá gerði það mér kleift að bjóða upp á þetta á húsvísu. Fyrst um sinn var ég aðeins með þetta einu sinni í viku fyrir um 10 skjólstæðinga í senn. Með aukinni eftirspurn þá er þetta núna tvisvar sinnum í viku á mánudögum og miðvikudögum.
Flotmeðferð gagnast öllum sem vilja ná fram slökun en fyrst og fremst er þetta úrræði í boði fyrir þá einstaklinga sem finna fyrir streitu og hafa átt erfitt með hefðbundna slökun. Skjólstæðingar á Reykjalundi þurfa því að uppfylla ákveðin skilmerki fyrir flotið.
Uppbygging tímans byggist á fræðslu um flotið og flotbúnaðinn, flot í 30-45 mín og punktanudd undir iljar.
Með kveðju,
Ásta Kristín Gunnarsdóttir
Sjúkraþjálfari í taugateymi Reykjalundar
