Ágæta samstarfsfólk hér á Reykjalundi,
Síðasti vinnudagurinn hér á Reykjalundi fyrir sumarhlé er runninn upp. Eftir daginn í dag gerum við hlé á daglegri starfsemi fram yfir verslunarmannahelgi og hefjum starfið aftur þriðjudaginn 5. ágúst. Hlein er auðvitað undantekning og þangað sendi ég mínar bestu sumarkveðjur. Jafnframt verða framkvæmdir í gangi í húsinu næstu vikur og við nýjum tækifærið fyrir stórþrif, bónun gólfa og fleira.
Það er vonandi kærkomið fyrir alla að komast í sumarleyfið, hlaða batteríin og njóta lífsins.
Föstudagsmolarnir fara jafnframt í sumarfrí og birtast næst föstudaginn 8. ágúst.
Þó sumarleyfið sé sannarlega tilhlökkunarefni býð ég líka spenntur eftir að við förum í gang aftur að sumarhléi loknu og getum hafist handa við halda áfram hlutverki okkar sem leiðandi aðili í endurhæfingarþjónustu hér á landi. Þar bíða okkar mörg spennandi verkefni.
Ég óska ykkur öllum, fjölskyldum og vinum gleðilegs sumars, sem og öllum velunnurum Reykjalundar. Ég vona að þið eigið öll ánægjulegar sumarstundir hvort sem það er í faðmi fjölskyldu og vina heima við, á ferðalögum eða bara í hvíldarslökun með sjálfum ykkur.
Myndin með molunum í dag var tekin í starfsmannaleikfiminni okkar á nýlega og er vel við hæfi fyrir sumarið.
Góða og gleðilega helgi.
Hafið það gott í sumar og njótið lífsins!
Bestu kveðjur,
Pétur

Starfsmannaleikfimi – júní 2025