Á dögunum bauð kennsluráð Reykjalundar fulltrúum frá Læknadeild Háskóla Íslands á fund á Reykjalundi. Á fundinum voru Karl, Árdís, Guðrún Nína og Guðrún Þuríður læknar á Reykjalundi, Hlín nýr forstöðusjúkraþjálfari, Marta rannsóknarstjóri, Sædis Sævarsdóttir, prófessor og nýr forseti Læknadeildar og Sólveig Ása Árnadóttir, prófessor og formaður námsbrautar í sjúkraþjálfun.
Á fundinum var farið yfir samstarfssamning Reykjalundar og Háskóla Íslands, starfsemina á Reykjalundi almennt og kennslu og vísindavinnu sem starfsfólk Reykjalundar tekur þátt í, með áherslu á þjálfun lækna og sjúkraþjálfara þar sem nám þeirra fellur undir Læknadeild.

Heimsókn frá fulltrúum frá Læknadeild Háskóla Íslands
