Forsíða » Persónuvernd

Persónuvernd

Vinnsla persónuupplýsinga er óhjákvæmilegur þáttur af starfsemi Reykjalundar og leggur stofnunin áherslu á að vernda upplýsingarnar með tæknilegum og skipulagslegum ráðstöfunum. Reykjalundur leggur áherslu á að tryggja að öll meðferð per­sónu­upp­lýs­inga sé í sam­ræmi við ákvæði laga um per­sónu­vernd og meðferð per­sónu­upp­lýs­inga nr. 90/2018 og lögum um sjúkraskrá nr. 55/2009.

Persónuverndarstefna Reykjalundar endurhæfing ehf

Persónuupplýsingar og meðferð þeirra

Þær persónuupplýsingar sem skráðar eru á Reykjalundi hafa allar lagalegan eða þjónustulegan tilgang. 

Persónuupplýsingar sem við söfnum í starfseminni skulu vera:

  • Löglegar, sanngjarnar og réttar
  • Meðhöndlaðar af trúnaði og tryggðar gegn óheimilum breytingum
  • Vera skráðar í sérstökum, löglegum tilgangi og ekki síðar notaðar í öðrum óskyldum tilgangi
  • Vistaðar eins lengi og þörf er á og lög gera kröfur um
  • Vera uppfærðar og aðgengilegar
  • Persónuupplýsingar séu aðeins notaðar í upprunalegum tilgangi og eru ekki afhentar öðrum nema að beiðni hlutaðeigandi, með ótvíræðu samþykki hans eða okkur beri lagaleg skylda til.
Hver er þinn réttur
  • Þú hefur rétt til að þess að fá allar þær persónulegu upplýsingar sem um þig eru skráðar hvort sem upplýsingarnar eru á rafrænu eða pappírsformi, hvaðan upplýsingarnar komi og til hvers þær eru notaðar. 
    • Beiðni um upplýsingar, aðrar en upplýsingar úr sjúkraskrá, skal send til persónuverndarfulltrúa Reykjalundar gunnhildur@samtok.is
    • Beiðni um aðgang að eigin sjúkraskrá skal send til umsjónaraðila sjúkraskrár Reykjalundar hgf@reykjaundur.is
  • Þú hefur rétt til þess að krefjast þess að rangar eða ófullkomnar skráningar verði leiðréttar. 
  • Þú getur farið fram á að ónauðsynlegum upplýsingum um þig verði eytt nema okkur beri skylda til að varðveita upplýsingarnar samkvæmt lögum og eyðing upplýsinganna á einhvern hátt brjóti á rétti annarrar persónu um persónuvernd
  • Synjunum um leiðréttingar á skráningum í sjúkraskrá má skjóta til Embættis landlæknis með kæru.
Persónuverndarfulltrúi
  • Hjá Reykjalundi er starfandi persónuverndarfulltrúi sem tekur á mótir beiðnum um upplýsingar um persónuverndarmál og er tengiliður við Persónuvernd. Persónuverndarfulltrúi Reykjalundar er Gunnhildur Erla Kristjánsdóttir með netfangið gunnhildur@samtok.is
Eftirlit
  • Persónuvernd annast eftirlit með framkvæmd laga um persónuvernd, reglugerða og sérákvæða í lögum sem fjalla um vinnslu persónuupplýsinga. Sérhver skráður einstaklingur eða fulltrúi hans hefur rétt til að leggja fram kvörtun hjá Persónuvernd ef hann telur að vinnsla persónuupplýsinga um hann brjóti í báta við lög eða reglugerðir. Frekar upplýsinga um persónuvernd er að finna á vef stofnunarinnar personuvernd.is
Rafræn vöktun á Reykjalundi
  • Í Persónuverndarstefna RL kemur fram að myndefni úr eftirlitsmyndavélum í móttöku og sundlaug er varðveitt í 30 daga. Aðgangur að myndefni er takmarkaður og afhending til lögreglu eða tryggingafélaga er aðeins heimil við sérstakar aðstæður.
Fyrirvari

Vinsamlegast athugið að þessi tölvupóstur og viðhengi hans eru eingöngu ætluð þeim sem tölvupósturinn er stílaður á og gætu innihaldið upplýsingar sem eru trúnaðarmál.
Hafir þú fyrir tilviljun, mistök eða án sérstakrar heimildar tekið við tölvupósti þessum og viðhengjum hans biðjum við þig að fara eftir 4. mgr. 88. gr. laga um fjarskipti nr. 70/2022 og gæta fyllsta trúnaðar, hvorki lesa efni þeirra né skrá þau hjá þér né notfæra þau á nokkurn hátt og tilkynna okkur samstundis að þau hafi ranglega borist þér. Brot gegn þessu kann að varða stjórnvaldssekt, skv. m. lið, 1. mgr. 103. gr. og refsingu skv. 104. gr. laganna.

Skip to content