Fréttir : Forsíða » 22. vísindadagur Reykjalundar

 

Jónína, Guðrún Nína, Kristín, Marta, Thelma, Hlín, Kristján, Karl, Pétur

Fimmtudaginn 13. nóvember sl var vísindadagur Reykjalundar haldinn í 22. sinn.  Á vísindadegi kynna starfsmenn Reykjalundar og nemendur undir leiðsögn þeirra niðurstöður rannsókna unnum á Reykjalundi eða í samstarfi við Reykjalund.  Kynntar voru niðurstöður úr þremur bakkalár verkefnum við Háskóla Íslands, fimm meistaranámsverkefnum og þremur doktorsnámsverkefnum við Háskóla Íslands, Háskólann í Reykjavík og Háskólann á Akureyri.  Erindin voru fjölbreytt að venju: Nytsemisprófun á stafrænni eftirfylgd, áhrif kítosans og lífstílsbreytinga á þarmaflóru kvenna, langtímaáhrif endurhæfingar á starfræn taugaeinkenni, áhrif endurhæfingar á lifun eftir skurðaðgerð vegna lungnakrabbameins og svo mætti áfram telja.  Ágrip vísindadagsins og allra hinna fyrri er að finna á heimasíðu Reykjalundar undir „vísindi og kennsla“. Að þessu sinni var bryddað upp á þeirri nýbreytni að verðlauna besta erindið.

Úr vöndu var að ráða fyrir dómnefndina, sem skipuð var tveimur starfsmönnum Reykjalundar og einum fulltrúa úr stjórn Reykjalundar ehf en niðurstaðan varð erindi Thelmu Rúnar Rúnarsdóttur næringarfræðings og doktorsnema. Dr. Marta Guðjónsdóttir rannsóknarstjóri stýrði þessum vísindadegi eins og hinum 21 sem undan er gengnir. Hún lætur af störfum í febrúar á næsta ári og þetta því síðasti vísindadagurinn undir hennar stjórn. Eins og er svo einkennandi fyrir vísindadag Reykjalundar komu margar áhugaverðar spurningar úr sal eftir hvert erindi sem er svo mikilvægt fyrir rannsakendur. Ekki var spjallið yfir veitingunum, sem starfsfólk eldhússins á Reykjalundi reiddi fram, síður líflegt en látum myndirnar tala sínu máli.

Myndir frá vísindadeginum
Skip to content