Svana Helen Björnsdóttir hefur verið ráðin forstjóri Reykjalundar. Hún hefur gegnt starfi forstjóra tímabundið frá því í lok nóvember síðasta árs, þegar fyrrum forstjóri sagði starfi sínu lausu. Svana Helen var áður formaður stjórnar Reykjalundar.
Samhliða ráðningu Svönu Helenar hefur Sólveig Hildur Björnsdóttir verið kjörin formaður stjórnar Reykjalundar. Sólveig hefur setið í stjórn SÍBS, eiganda Reykjalundar, frá árinu 2014.
Lesa má frétt á fréttamiðli: Vísir
