Forsíða » Endurhæfing » Meðferðarteymi

Meðferðarteymi

Þverfagleg endurhæfing í meðferðarteymi byggir á góðum samskiptum og samvinnu milli fagfólks og sjúklinga. Slík nálgun skilar betri árangri þegar kemur að flóknum heilsufarsvanda.

Endurhæfing á Reykjalundi en einstaklingsmiðuð fyrir hvern sjúkling og er markmiðið að auka færni, virkni og þátttöku sjúklings í lífi og starfi og bæta lífsgæði hans. 

Virk þátttaka sjúklinga í meðferð sinni er einn mikilvægasti þátturinn í þverfaglegri teymisvinnu og samskipti milli sjúklings og meðferðaraðila er lykilþáttur. Mikilvægt er að vinna saman að lausn mála, deila hugmyndum og tillögum og gefa endurgjöf.

Þú ert í miðju þíns teymis og þáttaka þín er lykillinn að árangri. Þú og þitt teymi vinnið saman í átt að settum markmiðum. 

Í meðferðinni fær hver sjúklingur ákveðinn umsjónarlækni, hjúkrunarfræðing, sjúkraþjálfara og iðjuþjálfa sem hann hittir reglulega í meðferðinni. Metin er þörf fyrir aðkomu annarra fagstétta (t.d. sálfræðings, talmeinafræðings, næringarráðgjafa eða félagsráðgjafa) þar sem vandi hvers og eins getur verið fjölþættur. 

Meðferðaraðilar leggja mat á árangur meðferðar, fara yfir framvindu og meðferðarmarkmið með sjúklingi. 

Skip to content