Faghópar
Endurhæfing er þverfagleg vinna og einkennist af samvinnu margra fagmanna sem ásamt sjúklingi hjálpast að við að ná markmiðum endurhæfingar.
Félagsráðgjöf
Félagsráðgjafar vinna með sjúklingum og aðstandendum þeirra að úrlausnum félagslegra vandamála. Vandinn getur meðal annars tengst fjármálum, búsetu, menntun, atvinnu, fjölskyldu og fleiru. Félagsráðgjafar veita stuðning í persónulegum málum, upplýsingar um félagsleg réttindi og aðstoð við umsóknir þar að lútandi.
Heilsuþjálfun
Íþróttafræðingar sjá um almenna hreyfingu eins og leikfimi, göngur, sundkennslu og sundþjálfun, ásamt því að kenna stafgöngu, borðtennis, badminton og boccia. Einnig kynna Íþróttafræðingar almenningsíþróttir svo sem gönguskíði á veturna, golf og hjólreiðar á sumrin, taka þolpróf og framkvæma líkamsgreiningu.
Hjúkrun
Hjúkrun er einstaklingshæfð meðferð sem byggist á þörfum sjúklingsins og felst í að styðja sjúklinga til að taka á ýmsum þáttum sem hafa áhrif á heilbrigði þeirra. Unnið er með lífsstíl og mögulegar lífsstílsbreytingar. Þar má nefna svefn og svefnvenjur, slökun, næringu, tóbaksnotkun, jafnvægi í daglegu lífi, félagslega virkni, sjálfsumönnun og sjálfsumhyggju.
Iðjuþjálfun
Iðjuþjálfar eru með sérþekkingu á daglegri iðju mannsins í tengslum við heilsu, umhverfi og velferð. Iðjuþjálfar meta og greina færni einstaklings við framkvæmd iðju, með það markmið að auka færni, sjálfstæði og þátttöku í iðju sem hefur gildi og er mikilvæg.
Lækningar
Læknir sem starfar við endurhæfingu þarf að hafa hæfni til að
sjúkdómsgreina og meta færni, virkni og þátttöku sjúklings í lífi og
starfi. Hann þarf að hafa þekkingu til að setja upp endurhæfingaráætlun
og þekkja úrræði sem í boði eru í samfélaginu. Hann þarf að hafa
þekkingu á árangursmælingum í endurhæfingu og hæfileika til að miðla
þekkingu til sjúklings og aðstandenda hans og til samstarfsfólks.
Næringarráðgjöf
Næringarfræðingar vinna með sjúklingum að úrlausnum næringartengdra vandamála. Vandinn getur meðal annars tengst efnaskiptasjúkdómum, vannæringu, meltingu, átröskun, lífsstílstengdum sjúkdómum og fleiru. Næringarráðgjöf/meðferð er veitt bæði á einstaklingsgrundvelli og með hópfræðslu.
Sálfræðiþjónusta
Langvinn veikindi, þreyta, þrálátir verkir, álag og streita getur haft áhrif á andlega líðan en sumir eru fyrst og fremst í endurhæfingu vegna sinnar geðheilsu. Hlutverk sálfræðinga er kortleggja sálræna þætti og vísa í viðeigandi úrræði, svo sem fræðslu, hópmeðferð eða einstaklingsmeðferð hjá sálfræðingi.
Sjúkraþjálfun
Starf sjúkraþjálfara er mjög fjölbreytt og sjúkraþjálfarar vinna við að koma í veg fyrir eða draga úr afleiðingum áverka, álagseinkenna, sjúkdóma og lífsstíls sem með truflun á hreyfingu geta raskað lífi einstaklingsins.
Talmeinafræði
Sjúklingum er vísað í talþjálfun af ýmsum orsökum. Það getur verið
vegna málstols og annarra máltruflana í kjölfar áunnins heilaskaða
eftir sjúkdóma eða slys, raddmeina, þvoglumæli, lestrarerfiðleika eða
annarra tjáskiptavandamála. Talmeinafræðingar sinna einnig fólki með
kyngingarerfiðleika.