Hjarta- og lungnarannsókn
Ýmis konar álagspróf, öndunarmælingar og svefnskimanir eru megin viðfangsefni hjarta- og lungnarannsóknarstofunnar.
Að auki sinnir stofan ýmsum öðrum mælingum svo sem sólarhringsblóðþrýstingsmælingum, hjartaholter rannsóknum og hjartaómunum.
Ofangreindar rannsóknir eru eingöngu gerðar samkvæmt beiðni frá lækni.
Álagspróf eru gerð til að meta þrek og líkamlegt ástand hjarta- og
lungnasjúklinga fyrir og eftir endurhæfingu, en auk þess er þeim oft
beitt til sjúkdómsgreiningar. Próf þessi eru mismunandi að gerð, allt
frá einföldum sex mínútna gönguprófum eða einföldu álagsprófi á hjóli
til viðamikilla og flókinna prófa þar sem öndunarloft í hvíld og við
áreynslu er mælt og efnagreint og teknar blóðprufur úr slagæð. Í hverju
tilviki er metið hvers konar álagspróf hentar best. Fyllsta öryggis er
gætt en auk starfsfólks rannsóknarstofu er læknir ávallt viðstaddur
álagspróf.
Svefnskimun er framkvæmd ef grunur er um kæfisvefn eða aðra svefnháða öndunartruflun/næturhypoxiu.
Saga um fótaóeirð og grunur um fótakippi. Eftirlitsmæling í CPAP/BiPAP tæki.
Með öndunarmælingum er hægt að greina teppusjúkdóm í lungum og meta stig
sjúkdómsins. Þá fást einnig upplýsingar um gang sjúkdómsins með
samanburði við eldri mælingar. Ýmsa sjúkdóma sem valda herpu, það er
skertu lungnarúmmáli, má einnig greina og meta með öndunarmælingum.
- Rannsóknarstofan býður upp á sólarhringsblóðþrýstingsmælingu. Markmið þeirrar rannsóknar er að fylgjast með blóðþrýstingi með reglulegum mælingum í einn sólarhring. Helstu ábendingar eru grunur um háþrýsting, lágþrýsting og mat á lyfjameðferð.
- Hjartaholter rannsókn er mat á hjartsláttar takti, hraða og truflunum. Áhættumat. Algengustu ábendingar: svimi, yfirlið, hjartsláttarónot, viss lyfjameðferð.
- Við hjartaómun er stærð hjartahólfa, samdráttur hjarta og útlit slegla metið. Útlit og starfsemi hjartaloka, lungnaþrýstingur og gollurshús metið. Algengustu ábendingar: Áhættumat hjarta- og lungnasjúklinga. Mat á mæði og úthaldsleysi.