Oddssjóður
Oddssjóður var stofnaður af stjórn Reykjalundar 1991 til minningar um Odd Ólafsson sem var yfirlæknir á Reykjalundi 1945-1972.
Tilgangur sjóðsins er að efla fræðslu, rannsóknir og aðra vísindastarfsemi á Reykjalundi og veita fé til kaupa á tækjum og búnaði til notkunar við endurhæfingu á stofnuninni.
Tekjur sjóðsins eru sala minningarkorta og framlög frá velunnurum Reykjalundar.
Úthlutanir úr sjóðnum hafa meðal annars verið:
- Tækjabúnaður fyrir sjúkraþjálfun
- Sjúkralyfta fyrir sambýlið Hlein
- Sjúkrarúm og náttborð
- Námsstyrkir fyrir starfsmenn
- Framlög í Vísindajóð Reykjalundar
- Eftirlitshjartarafrit fyrir þjálfun (telemetria)
- Búnaður fyrir heilsuþjálfun svo sem gönguskíði, reiðhjól, Garmin leiðsögutæki og öryggisbátur.