04.12.2024
Fartölvur að gjöf til Reykjalundar.
Reykjalundur tók nýlega á móti glæsilegri fartölvugjöf en um er að ræða nokkrar fartölvur ásamt helstu fylgihlutum eins og lyklaborðum og skjám. Andvirðið hefur safnast í sérstöku átaki á vegum SÍBS sem staðið hefur yfir undanfarnar vikur. Fartölvurnar nýtast víðsvegar hjá ýmsum hópum starfsfólks Reykjalundar í mikilvægu meðferðarstarfi fyrir sjúklinga okkar.
Reykjalundur þakkar kærlega fyrir veglegan stuðning og sendir velunnurum hlýjar kveðjur.
Meðfylgjandi mynd var tekin þegar fartölvurnar voru afhentar.