Frambjóðendur heimsækja Reykjalund.
Frambjóðendur heimsækja Reykjalund.
Það hefur líklega ekki farið framhjá neinum að Alþingiskosningar eru framundan. Frambjóðendur eru á ferð og flugi á mannamótum, vinnustöðum og víðar. Við hér á Reykjalundi erum stærsta endurhæfingarstofnun landsins og einnig með stærri vinnustöðum landsins svo ánægjulegt er þegar frambjóðendur sýna okkar starfsemi áhuga. Þó við séum með takmarkað aðgengi um húsnæði okkar höfum við fundað með frambjóðendum og kynnt þeim starfsemina. Í gær voru Alma D. Möller og Árni Rúnar Þorvaldsson, frambjóðendur Samfylkingarinnar, í heimsókn. Þau funduðu með hluta stjórnenda og Júlíusi formanni Hollvinasamtaka Reykjalundar og var að nægu að taka í umræðum um heilbrigðismálin.
Reykjalundur þakkar þeim kærlega fyrir komuna.