06.11.2024 Til baka
Heimsókn frá Heilbrigðisstofnun Austurlands
Á dögunum voru hér í heimsókn nokkrir starfsmenn frá Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA). Gaman er að segja frá því að undanfarið hefur verið í gangi umræða um að skoða mögulegt samstarf HSA og Reykjalundar varðandi endurhæfingu. Í heimsókninni var haldin sameiginleg vinnustofa um mögulega samstarfsfleti þar sem vaskur hópur frá okkur tók þátt. Niðurstaðna úr vinnunni er að vænta á næstunni og verður kynnt sérstaklega ef af verður.