22.10.2024 Til baka
Heimsókn frá félagsráðgjöfum á Landspítala.
Nýlega tóku félagsráðgjafar hér á Reykjalundi á móti 15 félagsráðgjöfum og félagsráðgjafanemum frá Landspítalanum. Gestirnir fengu kynningu á þverfaglegri endurhæfingu og félagsráðgjöf á Reykjalundi auk þess að fara í skoðunarferð. Starfandi félagsráðgjafar kynntu sín meðferðarsvið og stóðu sig afskaplega vel þannig að úr varð ljómandi fín heimsókn.
Við þökkum gestum okkar frá Landspítala kærlega fyrir komuna.