06.09.2024

Föstudagsmolar forstjóra 6. september 2024 - Gestahöfundur er Guðlaugur Birgisson sjúkraþjálfari.

Ágæta samstarfsfólk hér á Reykjalundi,

Hér koma föstudagsmolar vikunnar. Á sunnudaginn er alþjóðadagur sjúkraþjálfunar og því er vel við hæfi að gestahöfundur í dag sé Guðlaugur Birgisson sjúkraþjálfari og lýðheilsufræðingur.
Í ár er alþjóða dagurinn tileinkaður umfjöllun um mjóbaksverki og öflugt starf sjúkraþjálfara hvað varðar forvarnir og meðferð þeirra. Guðlaugur fjallar um þetta í áhugaverðum pistli sínum.

Um leið og ég segi til hamingju með daginn kæru sjúkraþjálfarar óska ég ykkur öllum góðrar og gleðilegrar helgar.

Bestu kveðjur,
Pétur
 



 
Föstudagsmolar 6. september 2024 – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar.

Kæra samstarfsfólk á Reykjalundi,

Á hverju ári er haldinn alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar. Nú ber hann upp á sunnudaginn kemur 8. september. Heimssamband sjúkraþjálfara WCPT stendur að deginum og notum við sjúkraþjálfarar daginn til þess að vekja athygli á okkar störfum sem spanna vítt svið. Í ár er dagurinn tileinkaður umfjöllun um mjóbaksverki og öflugt starf sjúkraþjálfara hvað varðar forvarnir og meðferð þeirra. 

Verkir í mjóbaki eru helsta ástæða færniskerðingar í heiminum í dag. 
Árið 2020 upplifðu 619 milljón manns í heiminum mjóbaksverki eða 1 af hverjum 13 jarðarbúum. Þetta er 60% aukning frá árinu 1990. Áætlað er að 843 milljónir alls mannkyns muni glíma við mjóbaksverki árið 2050. 

Talið er að 90% allra tilfella séu óskilgreind, þ.e. ekki hægt að rekja beint til skaða á taugum, liðum, vöðvum, liðböndum eða alvarlegra undirliggjandi sjúkdóma. Hvað varðar lengd einkenna þá eru góðu fréttirnar þær að minnihluti þeirra sem upplifir verki í mjóbaki þróar með sér langvarandi einkenni (hefur verki í meira en 3 mánuði). Langvarandi verkjaupplifun er oft á tíðum samspil líkamlegs og andlegs álags í daglegu lífi sem og fyrri áfallasögu.

Sjúkraþjálfarar eru í lykilhlutverki þegar kemur að forvörnum, greiningu og meðferð mjóbaksverkja. Með sértækum æfingum, fræðslu og ráðleggingum er varða líkamlegt álag og lífsstíl má fyrirbyggja mjóbakseinkenni og ennfremur auka lífsgæði þeirra sem glíma við langtíma verki. Í gegnum sérhæfða meðferð við langvinnum mjóbaksverjum gera sjúkraþjálfarar fólki kleift að vera virkara í daglegu lífi og öðlast betri stjórn á langvarandi einkennum.

Heimssamband sjúkraþjálfara lét fyrir stuttu útbúa veggspjöld og upplýsingablöð með ýmsum fróðleik um mjóbaksverki í tilefni alþjóðlegs dags sjúkraþjálfara. Félag sjúkraþjálfara hefur nú látið þýða þessa útgáfu og má sjá afraksturinn að hluta í viðhengi með póstinum í dag. Endilega kíkið á það.

Í lokin langar mig að óska öllum sjúkraþjálfurum á Íslandi til hamingju með alþjóðlega daginn á sunnudaginn kemur. 

Guðlaugur Birgisson
Sjúkraþjálfari og lýðheilsufræðingur.
Reykjalundi.
 

Til baka