27.08.2024

Sumargrill Reykjalundar

Sumargrill Reykjalundar í blíðunni í gær.

Í sólinni í gær bauð Reykjalundur starfsfólki, sjúklingum og öðrum skjólstæðingum í árlegt sumargrill. Það fer væntanlega hver að verða síðastur að njóta sólar þetta sumarið svo framtakið var öllum kærkomið. Gunnar, Jónas og hinir snillingarnir í eldhúsinu töfruðu fram alvöru Reykjalundarborgara en alls runnu um 250 borgarar ofan í svanga matargesti í hádeginu.
Meðfylgjandi eru nokkrar myndir sem lýsa stemningunni en eðli málsins samkvæmt birtum við ekki myndir af sjúklingum eða skjólstæðingum – undantekning er þó alltaf stuðboltarnir á Hlein.

Til baka