22.08.2024

Hleinarar buðu í pylsupartý!

 

Flottasta partý gærdagsins var klárlega á Hlein þegar íbúar nýttu sér sólina seinni partinn og buðu starfsfólki, ættingjum og velunnurum í alvöru pylsu-partý.

Ellý grillaði hátt í 100 pylsur og tónlistarmaðurinn Jón Sigurðurðsson (fimmhundruðkallinn) söng og spilaði svo allir komust í sannkallaða hátíðarstemningu. Hátíðin heppnaðist mjög vel og senda íbúar á Hlein öllum bestu kveðjur.

 

Til baka