12.07.2024

Föstudagsmolar forstjóra 12. júlí 2024 - Njótið sumarsins!



Ágæta samstarfsfólk hér á Reykjalundi,


Í dag er síðasti vinnudagurinn hér á Reykjalundi fyrir sumarhlé. Nú gerum við hlé á daglegri starfsemi fram yfir verslunarmannahelgi og hefjum starfið aftur þriðjudaginn 6. ágúst. Hlein er auðvitað undantekning og þangað sendi ég mínar bestu sumarkveðjur.
Það er vonandi kærkomið fyrir alla að komast í sumarleyfið, hlaða batteríin og njóta lífsins.
Föstudagsmolarnir fara nú í sumarfrí og verða næst föstudaginn 9. ágúst.


Þó sumarleyfið sé sannarlega tilhlökkunarefni býð ég líka spenntur eftir að við förum í gang aftur að sumarhléi loknu og getum hafist handa við halda áfram hlutverki okkar sem leiðandi aðili í endurhæfingarþjónustu hér á landi. Þar bíða okkar mörg spennandi verkefni.


Ég óska ykkur öllum, fjölskyldum og vinum gleðilegs sumars, sem og öllum velunnurum Reykjalundar. Ég vona að þið eigið öll ánægjulegar sumarstundir hvort sem það er í faðmi fjölskyldu og vina heima við, á ferðalögum eða bara í hvíldarslökun með sjálfum ykkur.
Eitt af mínum aðaláhugamálum er að ferðast um fallega landið okkar og ætla ég að gera nóg af því á næstunni. Læt hér fylgja eina mynd af Gullfossi hinum eina sanna. Myndin er tekin frá „hinni hliðinni“ en þessi glæsilegi foss er ekki síður tignarlegur ef komið er af honum úr Hrunamannahreppi sem ég gerði á dögunum en er sjaldan farið.


Hafið það gott í sumar og njótið lífsins!


Bestu kveðjur,
Pétur

Til baka