02.07.2024

Sumarhátíð starfsmannafélagsins

Sólin skein skært á sumarhátíð starfsmannafélagsins.
Í sólinni í síðustu viku hélt starfsmannafélagið okkar glæsilega sumarhátíð fyrir okkur starfsfólk og fjölskyldur, börn og barnabörn. Tæplega 200 manns mættu og áttu saman ánægjulega stund á lóð Reykjalundar.Auk þess að njóta verðurblíðunnar og samverunnar, voru í boði ís og pylsur, hoppkastalar, andlitsmálning, blöðrur og ýmis leiktæki þannig að allir gátu fundið eitthvað við sitt hæfi.

Kærar þakkir til starfsmannafélagsins fyrir þetta frábæra framtak.

Við birtum hér nokkrar myndir frá hátíðinni en þar sem börn voru í meiri hluta höldum við opinberum birtingum frá þessum viðburði í lámarki.

Til baka