03.06.2024

Ný dagsetning Aðalfundar Reykjalundar - þriðjudaginn 25. júní kl 15.

Aðalfundur Reykjalundar endurhæfingar ehf. verður haldinn þriðjudaginn 25. júní kl 15 í samkomusal Reykjalundar (ekki 4. Júní eins og áður hafði verið auglýst). 

Vorið 2020 stofnaði SÍBS, eigandi Reykjalundar, sérstakt félag um rekstur endurhæfingarþjónustu á Reykjalundi. Félagið er óhagnaðardrifið einkahlutafélag með sérstaka stjórn sem er óháð stjórn SÍBS. Stjórn hefur ákveðið að Reykjalundur haldi formlega og opna aðalfundi, líkt fleiri heilbrigðisstofnanir gera. Á dagskrá verða, auk hefðbundinna aðalfundarstarfa, ávarp frá Sigurði H. Helgasyni forstjóra Sjúkratrygginga og erindi frá Mörtu Guðjónsdóttur rannsóknastjóra Reykjalundar um mikilvægi rannsóknastarfs á Reykjalundi. Fundurinn fer fram í samkomusal Reykjalundar.
Fundurinn er opinn og allir velkomnir.

 

Til baka