30.05.2024

Hjólablaður Hjalta

Hjalti bauð upp á hjólablaður.
Þar sem átakinu „Hjólað í vinnuna“ var ljúka þetta árið bauð Hjalti Kristjánsson íþróttafræðingur okkur samstarfsfólki hér á Reykjalundi upp á skemmtilegan fyrirlestur í hádeginu í gær. Samkvæmt eigin auglýsingu var viðfangsefnið að „blaðra um hjól og hjólaferðalög“. Hjalti sagði frá sýndi myndir frá hjólaferðum sem hef farið í á Íslandi og erlendis og var þar af nægu að taka í áhugaverðum myndum og mögnuðum ferðasögum.
Eins og áður segir varð þetta hjólablaður hin mesta skemmtun og þakkar Reykjalundur Hjalta kærlega fyrir framtakið!

 

Til baka