Aðalfundur Reykjalundar þriðjudaginn 4. júní kl 15.
Aðalfundur Reykjalundar þriðjudaginn 4. júní kl 15.
Aðalfundur Reykjalundar endurhæfingar ehf. verður haldinn þriðjudaginn 4. júní kl 15 í samkomusal Reykjalundar.
Vorið 2020 stofnaði SÍBS, eigandi Reykjalundar, sérstakt félag um rekstur endurhæfingarþjónustu á Reykjalundi. Félagið er óhagnaðardrifið einkahlutafélag með sérstaka stjórn sem er óháð stjórn SÍBS. Stjórn hefur ákveðið að Reykjalundur haldi formlega og opna aðalfundi, líkt fleiri heilbrigðisstofnanir gera. Á dagskrá verða, auk hefðbundinna aðalfundarstarfa, ávarp frá Sigurði H. Helgasyni forstjóra Sjúkratrygginga og erindi frá Mörtu Guðjónsdóttur rannsóknastjóra Reykjalundar um mikilvægi rannsóknastarfs á Reykjalundi. Fundurinn fer fram í samkomusal Reykjalundar.
Eins og áður segir verður fundurinn opinn og allir velkomnir.