23.08.2023
Mæðgurnar slógu í gegn.
Það
var heldur betur líf og fjör hér á Reykjalundi í hádeginu í dag þegar
mæðgurnar, Aðalheiður Kristín og Jónína Auður buðu starfsfólki og
sjúklingum upp á stórskemmtilega tónleika við matsal Reykjalundar. Þeir
mæðgur spiluðu á þverflautu og víólu og á efnisskránni voru íslensk
sönglög í samblandi við klassískar perlur. Að tónleikum loknum var þeim
klappað lof í lófa og við hér á Reykjalundi kunnum þeim bestu þakkir
fyrir. Ómetanlegt hvað Reykjalundur á marga velunnara.