Vísindaráð, rannsóknastjóri og framkvæmdastjórn funda
Á dögunum fór fram árlegur samráðsfundur vísindaráðs Reykjalundar, rannsóknastjóra og framkvæmdastjórnar. Í vísindaráði sitja þrír fulltrúar starfsmanna hverju sinni og er hlutverk vísindaráðs eftirfarandi:
- Að vera stjórn og stjórnendum Reykjalundar ráðgefandi um vísindastefnu stofnunarinnar.
- Að vinna náið með rannsóknastjóra að framgangi vísindastefnunnar.
- Að vinna að formlegum tengslum og samstarfi við aðrar stofnanir, innanlands og utan.
- Að leggja faglegt mat á allar umsóknir um styrki úr vísindasjóði og skila áliti til framkvæmdastjórnar.
- Að gæta samræmis í þeim matstækjum sem notuð eru á stofnuninni og vera ráðgefandi um stöðluð vinnubrögð við beitingu þeirra.
Nú sitja í Vísindaráði Aðalbjörg Albertsdóttir hjúkrunarfræðingur sem er formaður, Arna Elísabet Karlsdóttir deildarstjóri á hjarta- og lungnarannsóknarstofu og
Inga Hrefna Jónsdóttir forstöðusálfræðingur. Rannsóknarstjóri Reykjalundar er Marta Guðjónsdóttir og allar nánari upplýsingar um vísindaráðið er að finna á eftirfarandi slóð:https://www.reykjalundur.is/visindi/visindarad/
Framkvæmdastjórn Reykjalundar þakkar vísindaráði og rannsóknastjóra kærlega fyrir fundinn en meðfylgjandi mynd var tekin á fundinum.
Til baka