Orkusparandi vinnuaðferðir og leiðir
Þegar einstaklingur er veikur eða er að jafna sig eftir veikindi eru meiri líkur á viðkomandi finni fyrir mæði og orkuleysi. Ýmis verk sem áður voru létt verða erfið. Oft er það ekki eitthvað eitt einstakt verk sem er erfitt, heldur samansafn alls þess sem gert er yfir daginn eða vikuna. Það er einstaklingsbundið hvað hver og einn upplifir erfitt en líkamlegt erfiði er það sem oftast veldur mæði.
Orkusparandi vinnuaðferðir eru leiðir til að hámarka virkni með því að draga úr mæði og orkuleysi. Að spara orku þýðir ekki endilega gera minna, heldur að einstaklingur hugsi út í hvernig hann notar krafta sína til að gera hin ýmsu verk. Slíkar aðferðir geta auðveldað einstaklingi að finna jafnvægi milli eigin umsjár, starfa, tómstunda og hvíldar. Þær gera hann betur í stakk búinn til að sinna þeirri iðju sem er mikilvæg. Orkusparandi vinnuaðferðir fela m.a. í sér að forgangsraða og skipuleggja verkefni fyrirfram, vinna á hæfilegum hraða, nota öndunartækni, rétta líkamsbeitingu og hjálpartæki.
Forgangsröðun
Það eru mörg verk yfir vikuna sem við þurfum að gera, langar að geta gert og verk sem við eða aðrir ætlumst til að séu gerð. Dagleg verkefni eru mismikilvæg og því gott að spyrja sig eftirfarandi spurninga:
- Hvað þarf ég að gera í dag?/Hvað langar mig að gera í dag?
- Hvað getur beðið þangað til seinna eða til næstu daga?
- Hverju get ég sleppt eða hvað get ég hugsanlega fengið aðstoð við?
Fólk forgangsraðar oft verkefnum sem er nauðsynlegt að klára en gleymir að setja inn athafnir sem næra, gleðja og gefa lífinu lit. Það er orkugefandi að vinna að einhverju sem veitir ánægju. Því er gott að muna að lífið er meira en bara endalausar kröfur og verkefni sem þarf að klára. Félagsleg samskipti við fjölskyldu og vini, þátttaka í tómstundaiðju hefur oft meiri þýðingu fyrir okkur en t.d. að þvo þvottinn eða skúra gólfið.
Skipulag
Það er gagnlegt að skipuleggja verk sín fyrirfram og ákveða hvernig og hvenær hægt er að framkvæma þau á sem auðveldastan hátt. Skipuleggja minnst eina viku fram í tímann. Forðast að gera of mikið á einum degi því það getur leitt til þreytu og orkuleysis næsta dag. Öll hreyfing krefst orku og þar með súrefnis því er gott að skipuleggja verk áður en byrjað er. Góð skipulagning felur í sér færri aukaferðir, beygjur, teygjur, burð og lyftur. Gott er að hafa eftirfarandi í huga þegar sett er upp skipulag:
- Dreifa verkunum jafnt yfir vikuna.
- Deila álaginu með því að skipta verkefnum hvers dags niður í léttari og erfiðari verk.
- Nýta þann tíma sem þú ert vel upplögð/upplagður til að gera þyngstu verkin.
- Deila út verkefnum til annarra á heimilinu eða kaupa aðstoð við verk sem taka of mikla orku.
- Setja skipulagið upp í vikudagskrá og hafa það sýnilegt t.d. á ísskápnum.
Temprun
Hæfilegur vinnuhraði getur haft mikil áhrif á framkvæmd daglegra verka. Með því að byrja rólega og taka hvíld inn á milli er hægt að endast lengur við verkið. Góð ráð gætu verið:
- Að gefa sér góðan tíma til verksins og gera eitt í einu. Hvert verk þarf sinn tíma. Ekki byrja á verki nema hafa nægan tíma til að ljúka því eða geta hætt þegar þreyta gerir vart við sig.
- Tempra hraðann með því að vinna hvorki of hægt eða of hratt.
- Einbeita sér að því hvaða vinnuhraði henti best.
- Vinna með rólegum hreyfingum og taka sér hvíld inn á milli.
- Í hvíldarhléi er gott að finna góða hvíldarstellingu, annaðhvort sitjandi eða standandi.
- Muna eftir að gera ráð fyrir slökun eða hvíld inn í daginn.
Öndun
Með því að nota öndunartækni meðvitað er hægt að auðvelda sér daglega iðju. Rétt öndun bætir loftskipti og hefur þar með áhrif á úthaldið. Margir upplifa að þeir halda niðri í sér andanum þegar þeir erfiða. Muna því að anda!
- Nota þindaröndun og mótstöðuútöndun við daglega iðju.
- Við innöndun er andað inn í gegnum nef þannig að magi og brjóstkassi þenjist út. Þannig berst meira loft til lungnanna.
- Við útöndun er notuð mótstöðuöndun sem er góð leið til að halda öndunarveginum opnum; andað er rólega inn í gegnum nefið og svo rólega frá í gegnum lítið op milli varanna. Láta útöndun vara ögn lengur en innöndun.
Líkamsbeiting
Með því að vinna í uppréttri stöðu með beint bak fá lungun bestu vinnuskilyrðin (þetta hjálpar til við að fá meira súrefni til lungnanna) og álagið á hrygginn verður minna.
- Beygja hnén í stað baksins þegar lyft er þungum hlutum.
- Gæta þess að hafa vinnuna fyrir framan sig og sem næst líkamanum. Verk sem krefjast þess að verið sé að teygja sig og beygja eru orkufrekari en verk sem unnin eru í brjósthæð og nálægt líkamanum (mynd 1).
- Nota stóru vöðvana í fótunum og þungaflutning við standandi vinnu í stað þess að teygja handleggina langt út frá líkamanum. Þannig dreifist álagið á stærri hluta líkamans en ekki eingöngu á handleggi.
- Þegar þarf að beygja sig er gott að beygja hnén eða styðja annarri hendinni við t.d. borð og færa gagnstæðan fót aðeins aftur. Þannig helst bakið beint og öndunin veður auðveldari.
- Sitja í stað þess að standa við vinnuna. Talið er að með því að sitja við verk í stað þess að standa sé hægt að spara orkueyðslu um 25%.
- Í stað þess að bera þunga hluti er hægt að flytja þá á búnaði með hjólum, eins og t.d. hjólaborði eða tösku á hjólum.
- Það er auðveldara að ýta hlutum en draga þá.
- Ef þú þreytist við að nota handleggi t.d. við snyrtingu getur verið gott að hvíla olnboga á vaskinum/vaskaborðinu eða styðja með annarri hendi undir olnbogann á þeirri hendi sem verið er að nota.
Hjálpartæki
Hjálpartæki eru hugsuð til að takmarka mæði og áreynslu við daglega iðju. Þau geta aukið færni við að framkvæma dagleg verk s.s. að komast um utandyra, við matreiðslu, persónulegt hreinlæti eða heimilisstörf. Má þar nefna griptöng, sokkaífæru, vinnustól og baðbretti/sturtustól. Einstaklingar með skerta færni við daglega iðju geta átt rétt á hjálpartækjum í gegnum Sjúkratryggingar Íslands (SÍ). Yfirleitt metur heilbrigðisstarfsmaður þörf fyrir hjálpartæki og sækir um til SÍ.
Í eftirfarandi sýnidæmum er búið setja upp nokkrar daglegar athafnir út frá forgangsröðun, skipulagi og temprun samkvæmt orkusparandi leiðum.
Snyrta sig |
||
Temprun |
Skipulag |
Forgangsröðun |
|
|
|
Fara í sturtu/bað |
||
Temprun |
Skipulag |
Forgangsröðun |
|
|
|
Klæðnaður |
||
Temprun |
Skipulag |
Forgangsröðun |
|
|
|
Skipta um á rúmi (sjá myndband á reykjalundur.is/orkusparandi) |
||
Temprun |
Skipulag |
Forgangsröðun |
|
|
|
Elda |
||
Temprun |
Skipulag |
Forgangsröðun |
|
|
|
Innkaup |
||
Temprun |
Skipulag |
Forgangsröðun |
|
|
|
Þvo og ganga frá þvotti |
||
Temprun |
Skipulag |
Forgangsröðun |
|
|
|
Ingibjörg Bjarnadóttir og Erla Alfreðsdóttir
Iðjuþjálfar á Lungnasviði Reykjalundar.
Til baka