Nýjar leiðir til heilsueflingar
Í Morgunblaðinu í gær var viðtal við þau Láru M. Sigurðardóttur og Pétur Magnússon:
„Endurhæfing er mikilvægur þáttur í heilbrigðisþjónustu og efling hennar er sennilega ein besta leiðin til þess að ná markvissari nýtingu fjármuna. Heilsueflandi starf getur til dæmis komið í veg fyrir að fólk þurfi að leggjast inn á hátæknisjúkrahús og auðveldar öðrum að komast aftur út á vinnumarkaðinn eða verða með öðru móti virkir þáttakendur í samfélaginu. Það er leiðarljósið í öllu okkar starfi,“ segir Pétur Magnússon forstjóri Reykjalundar.
Með dagskrá alla þessa viku verður þess minnst að 75 ár eru síðan Reykjalundur í Mosfellsbæ var opnaður, þá sem endurhæfingarstöð fólks sem glímdi við afleiðingar berkla. Langt er síðan sigur náðist á þeim sjúkdómi og í dag leitar á Reykjalundi fólk sem þarf að stoð og þjálfun til að ná aftur vopnum sínum eftir til dæmis eftir veikindi, slys eða önnur áföll. Á bilinu 1.000-1.200 manns koma á ári hverju í meðferð á Reykjalundi og er aðsóknin mikil.
„Reykjalundur er í raun allt önnur stofnun en var þegar ég hóf hér störf árið 1983,“ segir Lára M. Sigurðardóttir framkvæmdastjóri hjúkrunar á Reykjalundi. „Fyrir 37 árum var hér enn fólk sem hafði fengið berkla, og glímdi við varanlega skerta starfsorku af þeim sökum. Hér bjuggu sumir í áratugi og störfuðu, enda var Reykjalundur þá „vinnuhæli“ eins það var kallað. Þegar berklar liðu undir lok fóru hjarta- og lungnasjúklingar í meiri mæli að koma hingað. Í dag er hér sinnt alhliða endurhæfingu. Flestir okkar skjólstæðingar eru hér aðeins yfir dag en einnig er hér 14 rúma sólarhringsdeild sem er fyrir þá mesta þjónustu þurfa.“
Aftur út í samfélagið
Læknisfræðileg endurhæfingu á Reykjalundi hefur það inntak uppræta, minnka eða bæta fyrir skerðingu í færni og virkni hvers skjólstæðings. Tekið er mið aðstæðum sjúklings og meðferðin sniðin eftir því. Takmarkið er að bæta lífsgæði fólks þannig að viðkomandi geti að nýju orðið virkur þátttakandi í samfélaginu.
Að meðferðarstarfi kemur fólk í ólíkum fagstéttum en á Reykjalundi eru efnaskipta- og offitu-, geðheilsu-, gigtar-, hjarta-, lungna-, tauga- og hæfingar- og verkjateymi – auk þess sem sérstakt meðferðarteymi sinnir starfsendurhæfingu skjólstæðinga. Starf þetta er unnið við hinar bestu aðstæður en á Reykjalundi eru æfinga og íþróttasalir, meðferðar- og vinnustofur, og tvær sundlaugar svo eitthvað sé nefnt.
Sótt í verkfærakistur
„Margar fagstéttir koma að meðferðarstarfinu hér og gerir stöðu Reykjalundar um margt einstaka. Við getum brugðist við vanda hvers skjólstæðings og aðstæðum í samfélaginu sem breytast hratt. Síðustu árin hefur verið áberandi hve margir þurfa aðstoð vegna lífsstílstengdra þátta, til dæmis kulnun, offitu og efnaskiptasjúkdóma. Því fylgir oft álag á stoðkerfi og andlegur vandi,“ segir Lára. „Sérstaklega höfum við hér lagt okkur fram við að sinna fólki sem gæti með tilliti til aldurs verið virkt á vinnumarkaði. Slíkt útilokar þó ekki að eldri komist hingað í meðferð ef þarf.“
Síðasta vetur var gert samkomulag milli Landspítala og Reykjalundar, um að af sjúkrahúsinu komi til endurhæfingar fólk sem veikst hefur af Covid-19 og þarf endurhæfingu í kjölfar veikinda. Slen, síþreyta og hjarta- og lungnasjúkdómar eru meðal annars afleiðingar sýkingarinnar en margt er þó óljóst enn. Í dag eru um 40 manns á biðlista eftir meðferð vegna Covid-19 á Reykjalundi og nánast á degi hverjum bætast nýjar umsóknir um meðferð við, að sögn Péturs Magnússonar.
„Þau sem þurfa endurhæfingu vegna Covid eru fólk á öllum aldri sem glímir við misjafnar afleiðingar veikindanna. Þessi hópur hefur verið í forgangi hér síðustu mánuði, en úr reynslubanka okkar og verkfærakistum voru hér á ekki löngum tíma þróaðar aðferðir og lausnir til að geta sinnt honum sem best,“ segir Lára.
Krónan áttfaldast
Fyrr á þessu ári stofnaði SÍBS óhagnaðardrifið félag, Reykjalaundur endurhæfing ehf. um meðferðarstarfið. Félagið hefur sérstaka stjórn, en hlutverk SÍBS sem eiganda verður sem fyrr að fjármagna uppbyggingu, m.a. með happadrættisfé. Daglegur rekstur byggir aðallega á þjónustusamningi við Sjúkratryggingar Íslands. „Fjármunir sem hið opinbera ver til heilbrigðisþjónustu verða alltaf takmarkaðir. Með fólksfjölgun og hækkandi meðalaldri er því mikilvægt að þróa nýjar leiðir í heilsueflandi stafi. Framlög ríkisins til Reykjalundar eru um tveir milljarðar króna á ári og rannsóknir segja hverja krónu sem fer í endurhæfingarstarf skili sér jafnvel áttfalt til baka. Því er til mikils að vinna,“ segir Pétur Magnússon.
Til baka