Sjálfsvörn, Reykjalundardeild SÍBS
Sjálfsvörn, Reykjalundardeild SÍBS, var stofnuð sem félag vistmanna á Reykjalundi í 13. febrúar árið 1945 og hefur starfað síðan.
Mikil breyting hefur verið á starfi deildarinnar í gegnum tíðina í takt við þróun starfsins á Reykjalundi. Í dag eru meðlimir rúmlega tvö hundruð, bæði fólk sem hefur verið í meðferð á Reykjalundi, aðstandendur þeirra og starfsfólk.
Ef gluggað er í heimildir, svo sem fundargerðir félagsins, má sjá að í upphafi stóð það vörð um hagsmuni þeirra sem dvöldu á Reykjalundi, enda bjó fólk þar stundum árum saman. Stofnuð var skemmtinefnd sem stóð fyrir kvöldvökum og margvíslegri skemmtun og mikill metnaður var lagður í að bjóða upp á góða afþreyingu, svo sem að fá vinsæla skemmtikrafta til að koma, haldnar kvikmyndasýningar og fleira.
Nú býr fólk ekki lengur á staðnum og allar aðstæður gerbreyttar frá því sem var og því er lögð meiri áhersla á að laga umhverfi og bæta aðbúnað á Reykjalundi, sem dæmi má nefna að deildin tók þátt í kostnaði við að laga gangstéttir við hús Reykjalundar, keypti ferðasúrefnissíu sem nýtist sjúklingum sem þurfa að nota súrefni utandyra, endurnýjun báta og búnaðar Reykjalundar við Hafravatn og endurnýjaðir hægindastólar í fræðsluherbergi iðjuþjálfunar. Einnig vinnur deildin að stefnumálum í samræmi við lög SÍBS.
Ekkert árgjald hefur verið í félaginu en það fær greiðslur frá SÍBS af seldum happdrættismiðum í Reykjalundarumboðinu. Miðana er hægt að kaupa í afgreiðslu Reykjalundar eða hjá SÍBS, ef keypt er á netinu eða annarsstaðar þarf að taka fram að fólk vilji vera í Reykjalundarumboðinu.
Hægt er að ganga í félagið með því að senda póst á maren[hjá]reykjalundur.is, þar þarf að koma fram nafn, kennitala, heimilisfang og netfang.
Til baka