Alþjóðadagur sjúkraþjálfunar
Í dag er alþjóðadagur sjúkraþjálfunar og er hann haldinn hátíðlegur á Reykjalundi. Auk hefðbundinnar starfsemi með skjólstæðingum Reykjalundar hafa sjúkraþjálfarar Reykjalundar hafa sett saman sérstaka dagskrá í tilefni dagsins fyrir starfsfólk Reykjalundar og er dagskráin hér:
Við opnum húsið kl. 6.45
Kl. 07.00 - 07.40 Byrjum daginn á vatnsleikfimitíma undir stjórn Ásþórs sjúkraþjálfara. Nú verður tekið á því. Um að gera að gefa sér smá stund eftir tímann í að slaka á í heita pottinum eða vatnsgufunni
Kl. 8.30 - 8.45 Burt með vöðvabólgu og verki, tilvalinn tími fyrir þá sem vinna mikið við skrifborðið, Kristín R verður með háls og herðaleikfimi í samkomusal Reykjalundar
Kl. 12.00 – 12.40 Starfsmannaleikfimi – hátíðarútgáfa í íþróttasalnum. Góðar uppbyggilegar æfingar sem reyna á, þú vilt ekki missa af þessum tíma, sem dæmi má nefna FysioFlow (það allra nýjasta í dag), Pilates, jafnvægisæfingar, færniæfingar og sjálfsnudd svo eitthvað sé nefnt
Kl.14.00-15.30 Dekur í fögru umhverfi sjúkraþjálfunardeildarinnar, boðið er upp á heitan bakstur og vax einnig verkjameðferð á nálastungudýnu og nálakodda.
Til baka