24.07.2016
Gestir frá hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands
Nýlega komu á Reykjalund gestir á vegum Nordplus - Norlys nets í hjúkrun, en þetta er samstarfsverkefni hjúkrunarfræðideildar HÍ og hjúkrunarfræðideilda á Norðurlöndum. Samkvæmt upplýsingum á vef Háskóla Íslands geta nemendur í hjúkrun sótt um að fara í skiptinám í einhvern af samstarfsskólunum í netinu, en einnig eru skipulögð hraðnámskeið. Gestirnir fengu móttöku og almenna kynningu um starfsemi Reykjalundar, auk þess að fara í skoðunarferð á hjúkrunardeildina Miðgarð, í sjúkraþjálfun og iðjuþjálfun.
Stýriskóli netsins er Metropolitan University College í Kaupmannahöfn.