25.09.2015
Reykjalundur fékk þrekhjól frá Kiwanisklúbbnum Eldey
Félagar í Kiwanisklúbbnum Eldey færðu Reykjalundi þrekhjól af gerðinni Cybex í vikunni.
Um er að ræða voldugt þrekhjól sem mun nýtast vel skjólstæðingum í endurhæfingunni á Reykjalundi.
Hjólið nýtist einstaklega vel til úthaldsþjálfunar fyrir skjólstæðinga með lungnasjúkdóm þar sem hjólið býður upp á góða framhalla stöðu.